Leit

Auglýsing

Klukkan

Undirsíðukubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

fríið búið og alvarann tekið við tíhíhí

06. september 2010 klukkan 16:13

Ég er ekki frá því að ég hafi verið að upplifa bestu viku lífs mín til þessa, búin að vera í fríi og ekkert nema hamingja hérna á þessum bæ. Við tókum helgina með trommpi og fórum út á fimmtudagi, föstudegi og laugardegi, sem er kanski ekki merkilegt. En þetta var ógeðslega gaman og við vorum ekki að koma heim fyyr en klukkan var á bilinu 7 -10 alla morgna Tongue out Hérna í Barce þá erum við ekki búinar að þurfa að borga fyrir einn einsata drykk og okkur er hleypt inn á VIP svæðinn eins og enginn sé morgundagurinn... jáhá það er sko gott að vera blondína í Barce haha Kiss

Við vorum svo þunnar og þreyttar í gær að við ákváðum að taka því bara rólega þrátt fyrir mikla pressu á okkur um að kíkja aftur út. Svo var ég líka að byrja í skólanum í dag og það hefði ekki verið sniðugt að mæta í djammgallanum fyrsta morguninn. Skólinn gekk rosalega vel í dag og ég er ekki frá því að næsta blogg verði bara allt á spænsku haha Wink
Ég og Steffý erum búnar og skemmta okkur ógeðslega vel og má sko segja að við fáum alla athygli í heiminum, löbbuðum frammhjá slysi um daginn og það hættu bara allir slökkviliðsmennirnir að vinna og byrjuðu að glápa á okkur og blístra, frekar fyndið, þar sem að það hefur greynilega enginn verið alvarlega slasaður.

Núna tekur alvaran við þá er ég að tala um skólinn fyrir mig, vinna fyrir Steffý, hardcore rækt og svo aflöppun á ströndinni næstu vikur, eða þar til að ströndinn breytist í tjill heima undir sæng. Eða það er að segja þangað til við förum á djammið aftur næstuhelgi og svo má náttúrlega ekki gleyma aðalatriðinu !!!

Það vill neflinlega svo vel til að hún Lady Gaga vinkona mín er að koma og spila í Barcelona í vetur og ég, Steffý og Svala erum að vinna í því að fá miða á þá, það á eftir að verða einhver geðveiki, ég get ekki beðið. Og Steffý getur ekki koimð heim til íslands, ekki vitandi það að ef hún fer þá missir hún af Gaga tónleikum, Sem má sko ekki gerast !!!
 
Skólinn gekk rosalega vel í dag og ég er ekki frá því að næst blogg verðir bara allt á spænsku haha Wink

 LoVe

p.s Ebba er þetta nógu stórir stafir ?? :)

 

Stefanía Fanney Björgvinsdóttir
2 athugasemdir

dagur 2 og enginn sól!!

01. september 2010 klukkan 14:16
Við rétt svo náðum að koma okkur til Barcelona með mjög svo miklum hlaupum á Kastrup flugvellinum, En það tókst og það sem tók á móti okkur var ekkert nema gleði og ótúleg fegurð.
Ég og Steffý erum búnar að vera dolfallnar yfir BCN og hvað þetta er snyrtileg og skemmtileg borg. Ég mæli eindregið með því að fólk kíki hingað einhvertíman.
fyrsti dagurinn var mjög svo spennandi, við komum heim og gerðum okkur klára fyrir daginn, fórum í local markaðinn okkar og versluðum í matinn og kíktum smá hring um hverfið. Fundum nektarströnd... ekki leiðinlegt það, og Steffý varð eins og epli í framan þegar hún sá í tippið á nokkrum gæjunum þarna, ég var svo blessunnarlega laus við að sjá tippi, sá bara rassa,  hahah

Síðan fórum við að skoða íbúð og fundum eina sem er alveg mega kósí og þægileg, mjög hljóðlát en er sammt alveg við ströndina og mjög stutt í alla klúbbana, en hún er reyndar frekar langt frá skólanum. Ég held að það taki mig ca 20 mín að komast í skóla. En það þýðir þá bara meira labb og stinnari leggjir.
Það var ógeðslega gott veður í gær, en ég og Steffý vorum bara of þreyttar til að meika hitan þaning að við lögðum okkur bara, og eftir það þá opnuðum við hvítvínið og sötruðum þangað til að nóttin tók við.

Dagur 2 er búin að vera miklu betri, við vöknuðim kl 9:00 í morgunn og tókum rölltið á Römblunni þar hittum við nokkar yndislega menn sem elska okkur og voru sko ekkert feimnir við að láta okkur vita af því :) hahah það var bara of fyndið !!

Það er sem betur fer búið að vera skýað í dag þaning að við erum bara búnar að vera að rölta um og skoða, kíktum í mollið sem er bara 5 mín frá heima hjá okkur, (það gæti orðið hættulegt)  Það er alveg frábært að vera hérna og sérstaklega yndislegt að labba um búðirnar og skoða Barcelona í svona melló veðri, skýað og ca 25 stiga hiti.

núna ætla ég að fara og taka til og hoppa svo aðeins í laugina í garðinuim hjá okkur... já við erum með sundlaug í garðinum nanana búbú :)

one LoVe 
 
Stefanía Fanney Björgvinsdóttir
5 athugasemdir

svartur sunnudagur

30. ágúst 2010 klukkan 01:01
Dagurinn í dag er búinn að vera jafn erfiður og hann er búinn að vera góður. Ég vaknaði með hnút í maganum, vitandi allt sem ég átti eftir að gera, með þynnkuna uppí háls eftir klikkaða djamm helgi og ekki nema dagurinn í dag til að redda hlutunum og mestalagi einhverjar skíta-reddingar á morgunn.

Ég á það ótrúlega góðar vinkonur sem að komu í partýið á laugardaginn og meira að segja hún Agnes Skúla lét sjá sig og allt! Ég sem var algerlega búin að gefa það upp á bátinn og var farin að plana að skrifa henni bara kveðjubréf. En allt kom fyrir ekki og hún kom alveg óvænt sem var frábært og besta kveðju gjöf sem ég gat óskað mér. En þessar elskur að norðan gáfu mér mestu grenji heimþráarbók sem ég hef séð, ógeðslega gaman að skoða þessar myndir og ég veit að það á eftir að vera erfitt að skoða hana ekki þegar ég er fæ heimþrá
Undecided

Svo má náttúrulega ekki gleyma öllum hinum snillingunum sem komu, ekki séns að ég nenni að reyna að muna hverjir það voru, ég verð þó að nefna minn best vin ( já Agnes er besta VINKONA MÍN) hann Arnór, Ég held að hann hafi slegið öllum öðrum glimmer staukum við þegar hann byrtist með glimmer skykkju og í glimmer peysu af litlu systir sinni með grænnt glimmer band og grænt glimmer í framan... Það var bara of gott.

Eftir þetta magnaða kvöld eða þessa klikkuðu helgi öllu heldur þá gat ég ekki annað en skellt mér á Vitabar í þynkumat með elskunum mínum og knúsað þær bless í síðasta skipti, þangað til vonandi um jólin.


 Úff, hnúturinn farinn að segja aftur til sín...

Eftir akkurat sólarhring þá verð ég komin í loftið og byrjuð á enn einum kaflanum í þessari mögnuðu seríu um líf mitt. Þetta er svo spennandi bók að ég get ekki beðið eftir meiru. Fullt af ævintýrum og skemmtilegum sögum sem eiga enn eftir að birtast.

Ég nenni ekki að íþrengja ykkur (segir maður það ekki annars? ) með leiðindar sögum af sunnudeginum, þaning að það eina sem þið fáið að heyra er að ég er að vinna í því ómögulega verkefni að koma öllum heiminum fyrir í 2 töskur og einn bakpoka. Það gegnu ekkert of vel !!

en þangað til í BARCELONA BABY!!!!

one LoVe




Stefanía Fanney Björgvinsdóttir
1 athugasemd

Undirbúningurinn !!!

23. ágúst 2010 klukkan 17:42
Þá eru ekki nema 7 daga í brottför og ég er ekki frá því að maginn í mér sé með einhverja stæla við mig, ég er bæði svo spennt og kvíðinn fyrir þessum nýja kafla að ég get varla hugsað mikið lengur. Get ekki ímyndað mér hverning ég á eftir að vera á miðvikudaginn þegar ég hætti í vinnunni minni, og get sko enganveginn sagt að mig hlakki til þess þar sem að ég er að vinna á svo frábærum stað og það skemmir nú heldur ekki að ég hafi fengið að hafa eina af mínum bestu vinkonum með mér allan daginn :) ( já Magga ég er að tala um þig ) hehe

Ég ákvað að taka þá áhrifaríku ákvörðunn að bryja að pakka. Það gengur hægt, en örugglega.
Það sem ég er komin með ofan í töskuna mína er: úlpan mín, 1 húfu, 1ar stuttbuxur og litinn í hárið á mér, og ég sé ekki framm á að legnja þennan lista neitt í dag.

Þetta er semsagt það eina sem ég veit að ég er ekki að fara að nota aftur fyrr en að ég fer út. Svo er bara að bíða og sjá hvort að ég eigi eftir að finna eitthvað meira á morgunn til að koma ofaní töskuna.

Núna er ég lika að plana mega-glimmer-kveðju-partý í Auðbrekkunni á laugardaginn og þangað eru allir velkomnir til að kasta á mig kossi þar Kiss og það er aldrei að vita nem að maður taki nokkur lauflétt spor í ekta skagfirskrisveiflu.

LoVe

Stefanía Fanney Björgvinsdóttir
Almennt | 2 athugasemdir

Fyrsta blogg...

17. ágúst 2010 klukkan 14:23
fyrsta færslan peps... Nánar
Stefanía Fanney Björgvinsdóttir
Almennt | 5 athugasemdir