Feneyjar draumur
21. febrúar 2012 klukkan 17:10
Ég er komin til baka frá Ítalíu. Það var æðislegt að fá að
kynnast Feneyjum og Vicenza, sem er smábærinn sem ég gisti í og er ekki nema 40
min frá Feneyjum. Það sem að ég held að hafi heillað mig mest var hversu hlítt
var í íbúðinni og hvað það var geðveikt nice að komast loksins í heita og kraft
miklia sturtu… haha
Þegar ég mætti á flugvöllin og þá
tók á mót mér þessi líka myndalegi hermaður í fullum skrúða, en þá í
felulitabúningnum … tíhíhí
Við fórum til Feneyja í dágóðri þynku frá því kvöldið áður
og okkur tókst að villast í einhverja 4 klukkutíma. Ég held að það hafi verið
besti parturinn af Feneyjum, bara ráfa um og enginn fyrir okkur. Svo þegar að
við loksin komumst inn á Markúsar torgið þá var svo ótrúlega mikið af fólki að
við nenntum ekki að vera þar lengi og héldum bara áfram að villast um eyjuna.
Ég mæli með því fyrir alla að kíkja á þessa hátíð
einhverntíman, þetta var alger draumur og ótrúlega skemtilegt að sjá allt þetta
fólk upp dressað og með grímurnar labbandi um, dansandi og jafnvel skautandi. Já
við fundum skauta hring í einhverju húsasundinu þarna, og þau eru sko mörg.
Við gerðum þó ekki það sem ég hef heyrt að sé
gert þarna, en það er að labba á milli ókunnugra einstaklinga og kyssa þá. Enda
sáum við ekki mikið af fólki vera að gera það. Ekki það að ég hafi eitthvað
vitað til þess hvort að fólkið sem ég sá kyssast þarna hafi þekkst eða ekki…
kanski að ég geri það næst, því að ég fer sko alveg pott þétt aftur, og ykkur
er öllum boðið að koma með
Stefanía Fanney Björgvinsdóttir