Leit

Auglýsing

Klukkan

Undirsíðukubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

sjalla la la la.. ÆVINTÝRI !!!

15. febrúar 2012 klukkan 19:02

Það að halda á vit ævintýrana er ótrúlega skemmtilegt og ég er ekki frá því að það sé líka rosalega “scary” ef ég má sletta aðeins.
Það vill svo vel til að ég er einmitt að halda af stað í enn eitt ævintýrið í lífi mínu. Ég ætla að skella mér til Feneyja á Carnivalið. Ég fer ein sem mér finnst vera mega scary, en ég mun ekki vera ein, sem betur fer.
Ég er að fara að hitta vin minn sem býr þarna rétt hjá og það er sko algerlega honum að þakka að ég sé að láta þennan eldgamla draum rætast. Mig hefur sko lengi langað að fara til Feneyja og hvað þá þegar Carnivalið er. Grímurnar, Búningarnir og svo er  allt eitthvað svo dularfullt við þetta Canival. Ég heillast rosalega af því og veit að ég verði sko ekki fyrir vonbrigðum.
Ég fer í fyrramálið og mun sko koma með fullt af góðum pælingum og sögum frá Feneyjum þegar ég kem til baka, sem verður reyndar ekki fyrr en á þriðjudaginn.
Ég er með drullu spenning í maganum og get ekki beðið eftir að lenda í einhverjum skemmtilegum ævintýrum, svo er aldrei að vita nema að það verði einhver dularfullur maður handa mér í Feneyjum. Ég lofa að koma með eitthvað djúsí á Þriðjudaginn. Þangað til þá… ciao bella

 

 

 

 


Stefanía Fanney Björgvinsdóttir

Skrifa athugasemd