Hin lífsnauðsynlegu Girls Night Out
13. febrúar 2012 klukkan 21:34
Ég er svo ótúlega heppin að hérna úti eru nokkrar huggulegar
íslenskar stúlkur og eigum við það til að hittast annað slagið í ótúlega
skemmtilegum stelpukvöldum. Ég vil meina það amk fyrir mína parta þá eru þetta hin
líf nauðsynlegu “girls night out”
Ég tel að allar stelpur þurfa að hafa “girls night out”
Hanga bara með stelpunum,
ekkert plana eitthvað strákastand eða vera á ákveðnum klúbbi kl eitthvað
ákveðið, bara skella sér allar saman ýmist út að borða, eða heim til einhverrar
gellu sem er tilbúin að taka svoleiðis að sér og sjá svo bara hvert kvöldið
leiðir ykkur.
Við Barcelona skvísurnar héldum einmitt svona kvöld
síðastliðin föstudag og það var alveg órtúlega gaman. Eins og það er alltaf þegar
við hittumst. Við vorum um það bil10 stelpur og drukkum og slúðruðum og hlógum
og bara tókum allan pakkan á þetta. Svo þegar sumar dömurnar voru orðnar
þreyttar þá var bara haldið heim. Þetta þarf ekki að vera flókið. Drykkir og
skemmtilegur félagsskapur er allt sem þarf, mætti jafnvel reyna að deila við
mig um drykkina, en mér finnst þeir vera nauðsin.
Ég sagði hérna aðeins fyrr að þetta væru lífs nauðsinleg
kvöld. Og það eru alveg nokkrar ástæður fyrir því.
1. Það eiga allir að koma sér út úr húsi annað slagið (þá
meina ég aðalega skipta um umhverfi)
2.Það eiga allir að geta hlegið annað slagið og slúðrað og
jafn vel eignast nýja vini á svona kvöldum.
3. Það er rosalega gaman að lyfta sér aðeins upp.
4. Maður hittir vini sína aldrei of oft.
Þess vegna ráðlegg ég öllum dömum sem ég þekki að taka okkur
Barcelona gellurnar til fyrirmyndar og hafa stelpukvöld amk 1 sinni í máuði.
Það er SVO þess virði.
Stefanía Fanney Björgvinsdóttir