Elsku ég
09. febrśar 2012 klukkan 17:39
Ég hef oft pælt í orðatiltæki sem ég heyrði þegar ég var ung
(yngri) og hef alltaf verið mjög sammála því. Þetta orðatiltæki er: þú verður að læra að elska sjálfan þig svo
að aðrir getir elskað þig. Þessu er ég svo fullkomlega sammála. Ég var á
mínum unglingsárum þegar ég heyrði þetta og var þá langt frá því að elska
sjálfa mig. Ég var kannski sjálfselsk en ég elskaði ekki sjálfa mig nógu mikið.
Jú ég hef vissulega alltaf verið svo heppin að vera mjög ánægð með hvernig manneskja
ég er, en fannst á tímabili mjög erfitt að horfa á sjálfa mig og hugsa til þess
að einhver gæti elskað mig fyrir mig, en ekki fyrir einhvern uppgerðan
persónuleika. Ég sem betur fer heyrði þetta og fattaði strax að það var þarna
sem að ég þyrfti að taka á honum stóra mínum og vinna í því að verða sátt við
sjálfa mig.
Ég hef mikið hugsað út í þetta nýlega aðallega vegan þess að
mér finnst ég stundum finna fordóma frá fólki sem líklegast ekki þykir nógu vænt
um sig gangvart fólkinu sem þykir vænt um sig.
Ég á nokkra vini á FB sem mjög greinilega
elska sjálfan sig og þar af leiðandi eru þettta mjög skemmtilegir og vinsælir
einstakæingar. Þetta eru manneskur sem gera grín af sjálfum sér, setja inn
fullt af myndum bæði ljóutm og fallegum, er ekkert að skammst sín fyrir að hafa
óvart geri einhverja heimska hluti, og eru ekki að jesúsast yfir því að Karl
Lagerfeld hafi sagt að honum finnist Adele of feit. Því að það er jú bara hans
skoðun og við höfum öll rétt á okkar skoðunum án þess að einhver sé að pissa á
sig út af þeim.
Með því að vera ófeiminn og elskulegur, þá held ég að það sé
mun auðveldara fyrir fólk að kynnast manneskju sem elskar sjálfan sig og þar af
leiðandi er mjög auðvelt að elska þær.
Það er enginn feimni gangvart þessu hjá mér. Ég elska
sjálfan mig og er mjög stolt af því. Ég lærði líka ekki að segja fólkinu sem ég
elska, að ég virkilega geri það. Fyrr en ég fór að elska sjálfa mig og taka mig
í sátt.
Ég get með sanni sagt í dag við alla þá sem mér þykir vænt
um og elska að ég elska þá. En ég segi það líka ekki nema að ég virkilega meina
það.
Að geta virkilega meint að segja að
þú elskir einhvern er besta tilfinnig í heimi.
Ekki bara horfa á sjálfan þig sem einhven galla grip, heldur
ættir þú að líta í spegilinn og sjá hversu fallegur, elskulegur og einstakur
einstaklingur þú ert.
Eða eins og hún Ebba sys orðaði hérna um árið: Elskum friðin
og strjúkum kviðinn
Stefanķa Fanney Björgvinsdóttir