SUPERBOWL AFMÆLI!
06. febrúar 2012 klukkan 14:40
Um helgina var haldið upp á afmælið hennar Rutar með style.
Byrjuðum á laugardaginn á því að fara út að borða og drekka mega góða kokteila,
eftir það héldum við síðan í keilu. Ég veit ekki alveg hvort að ég ætti
eitthvað að vera að segja frá því hverning við sambýlingarnir stóðum okkur,
þaning að ég leyfi ykkur bara að giska á útkomuna, held að það sé bara best.
Auðvitað fengum við
okkur nokkra ölsopa með keiluni og héldum síðan á bar sem mundi kallast á
íslensku Svarti Sauðurinn og er betur þekktur hérna sem víkinga barinn. Þar sem
að þetta er svo frekar grófur bar, engin tónlist og fólk kemur þangað til að
DREKKA og hafa hátt. Við skelltum okkur líka á geðveikt dansiball með 80’s og
90’s tónlist og dönsuðum kanski aðeins of langt fram á næsta dag. En afmælis
helginni var þó ekki lokið þarna þar sem að Superbowl var í gær og auðvitað fórum
við að horfa á leikinn á einum stærsta sport bar í Barcelona. Og auvitað tókum
við Ameríska vini okkar með okkur svo að þeir gætu nú útskýrt leikinn. Ég hef
enþá ekki hugmynd um hverning þessi leikur gengur fyrir sig, en það er aðalega
út af mikilli drykkju og meiri áhuga á auglýsingunum og half time atriðinu. Sem
var geðveikt töff… já hún Madonna vinkona mín kann þetta enþá þessi elska. Svo komum
við okkur heim, aftur mikið seinna en við hefðum átt að gera. Það er nú bara
afmæli einusinni á ári, jafn vel þótt svo að maður taki spuer afmæli á þetta.
En það má líka þega það er Sperbwl helgi.
Stefanía Fanney Björgvinsdóttir