Leit

Auglýsing

Klukkan

Undirsíðukubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

ert þú femenisti??

01. febrúar 2012 klukkan 18:28

Munurinn á femenistum og öfgafeninsum er mikill. Því miður í íslensku samfélagi þá virðist fólk ekki átta sig á því hvað feministi er og líta því á alla sem telja sig vera feminista vera öfga rauðsokka kellingar.
Ég mundi telja mig sem feminsta því að ég tel að feminismi er að vera trúr sjálfum sér og ekki láta koma fram við mig eins og minnihluta manneskju sem getur ekki staðið upp fyrir sjálfri mér. Ég vil samt sem áður ekki að það sé komið eitthvað sérstaklega fram við mig bara afþví að ég er kona. Þótt svo að ég vilji að framtíðar makinn minn komi sérstaklega vel fram við mig, en það á að vera afþví að hann ber virðingu fyrir mér og elskar mig. Ekki af því að ég er kona, eða femenisti.
Karlenn geta líka verið femenistar, þótt svo að þeir séu ekki gangandi úti á götum með skilti sem stendur á ég opna hurðir og vil að konan mín fái hærri laun en ég.
Ég held að margir karlmenn átti sig ekki einusinni á því að þeir séu femenistar. Femenisti er einhver sem vill jafnrétti hjá öllum, ekki bara konum, heldur ÖLLUM.
Femenisti er einhver sem er nógu gáfaður til að geta látið sig varða um velferð annara, ekki bara sína eigin, eða velferð sinnar allra nánustu. Fallega manneskja sem getur látið í sér heyra án þess að vera með dónaskap eða þurfa að tala niðrandi um aðra hópa. Það er ekkert femenistalegt við það að ætlast til að það sé komið sómasamlega fram við mann ef að maður getur ekki komið sómasamlega fram við aðra.
Þú getur alveg verið skemmtileg/ur, svöl/alur, með rakaða fótleggi, vaxað klof, plokkað augabrúnir farið í klippingu og strípur, gengið í fallegum fötum og málað þig, en samt verið femenisti. ÉG er sko femenisti, hvað með þig?

 

 

 

 

 

 

Stefanía Fanney Björgvinsdóttir

Skrifa athugasemd